Gistiheimili Húsavíkur

Húsavík guesthouse

Gistiheimili Húsavíkur

Gistiheimili Húsavíkur stendur við Laugarbrekku 16 á Húsavík. Húsið var reist árið 1947 og er á tveim hæðum. Undanfarin tíu ár hefur það verið heimili fyrir starfsfólk Hvalasafnsins á Húsavík sem kemur víðs vegar að úr heiminum, en haustið 2009 var því breytt í gistiheimili fyrir ferðafólk.

Í gistiheimilinu eru sjö herbergi, fimm á jarðhæð og tvö á efri hæð. Á efri hæð eru einnig morgunverðarsalur, eldhús og gestamóttaka. Morgunverður er innifalinn í öllum okkar verðum og við leggjum mikið upp úr góðum og fjölbreyttum morgunverði fyrir gesti okkar. Allir gestir hafa aðgang að þráðlausu interneti í herbergjum sínum, en þeir sem eru ekki með tölvu meðferðis geta fengið aðgang að tölvu og prentara hjá starfsfólki.

Gistiheimili Húsavíkur er í göngufjarlægð frá öllum helstu kennileitum á Húsavík. Innan við mínútu gangur er í sundlaug, bensínstöð og verslun.

Gistiheimili Húsavíkur býður einnig upp á hópgistingu sem hentar íþróttafélögum og félagasamtökum eða starfsmannahópum í afþreyingar- eða vinnuferðum.

Ef þú vilt frekari upplýsingar er síminn hjá okkur 848 7600.

Tilboð á gistingu í júní 2010: Þrjár nætur á verði tveggja. Hafðu samband í síma 848 7600

Morgunverður á Gistiheimili Húsavíkur

Morgunverður á Gistiheimili Húsavíkur